SVEINN ÓLASON
er fæddur á Selfossi 28. apríl 1971.
Sonur hjónanna Óla Andra Haraldssonar bónda og Helgu Hermannsdóttur, húsmóður
Námsferill:
Tók stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Suðurlands 1990. Lauk háskólaprófi frá Den Kongilige Veterinær-og Landbohöjskole Kaupmannahöfn 1998. Hlaut almennt dýralæknaleyfi á Íslandi 26. mars 1998. Hóf framhaldsnám í hrossasjúkdómum hjá Den Danske Dyrlegeforening í mars 2008.
Starfsferill:
Vann við almenn sveitastörf og sjómennsku á sumrum fram til 1997. Sumarvinna við kjötskoðun hjá Svínasláturhúsinu í Hernig í Danmörku 1997. dýralæknir hjá Dýralæknaþjónustu Suðurlands frá mars 1998
Maki:
Sigurdís Lilja Guðjónsdóttir f. 30. apríl 1975 ferðamálafræðingur. Þau eiga synina Viktor Inga og Óla Frey.




