SIGURÐUR INGI JÓHANSSON

er fæddur 20. apríl 1962 á Selfossi

Sonur hjónanna Jóhanns Halldórs Pálssonar bónda í Dalbæ í Hrunamannahreppi og Hróðnýjar Sigurðardóttir bónda, húsmóðir, skrifstofumaður og sveitarstjórnarmaður.

Námsferill:
Sigurður tók stúdentspróf frá Menntaskólanum á Laugarvatni 1982. Lauk háskólaprófi í dýralækningum frá Den Kongilige Veterinær- og Landbohöjskole í Kaupmannahöfn.

Starfsferill:
Vann ýmis störf á námsárunum, á Íslandi og í Danmörku. Bóndi í Dalbæ 1989 – 1992. Sjálfstætt starfandi dýralæknir 1990 – 1995 og settur héraðsdýralæknir í afleysingum í Hreppaumdæmi og Laugarásumdæmi á sama tíma auk V- Barðastrandaumdæmis (tímabundið). Afleysinga- og vaktsamstarf í Hreppa og Laugarásumdæmi 1992 – 1994. Er einn af þremur stofnendum Dýralæknaþjónustu Suðurlands ehf. 1. jan. 1996 og hefur starfað þar síðan. Oddviti Hrunamannahrepps í aukastarfi frá 2002. Alþingismaður frá 2009.

Félags og trúnaðarstörf:
Átti sæti í ýmsum nefndum innan ungmennafélags Hrunamanna (U.M.F.H.) 1976 – 1982, sat síðan í varastjórn og var gjaldkeri knattspyrnudeildar U.M.F.K. 1990 – 1996. Gjaldkeri í sóknarnefnd Hrepphólakirkju 1993 – 1997. Meðstjórnandi í stjórn Dýralæknafélagi Íslands 1994 – 1996. Sat í ráðherraskipaðri nefnd sem vann að breytingum á dýralæknalögum 1996 – 1998. Formaður skólanefndar Menntaskólans á Laugarvatni frá des. 2001 (varamaður 1997 – 2001). Sat í stjórn Kaupfélags Árnesinga frá apríl 2002 til júní 2003. Formaður stjórnar Dýralæknaþjónustu Suðurlands. Formaður stjórnar Hótels Flúða hf. 1996 – 2002 og aftur frá 2003.
Setið í sveitarstjórn Hrunamannahrepps frá 1994, varaoddviti 1994-1998 og oddviti frá 2002. Setið í Héraðsnefnd Árnesinga frá 2002, í Heilbriðgisnefnd Suðurlands frá 2006. Sat í stjórn Atvinnuþróunarfélagsins 2002-2007 og var varaformaður 2006-7. Var í samgögnunefnd Sambands sunnlenskra sveitarfélaga 2003-2006.

Maki:
Elsa Ingjaldsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og samtals eiga þau 5 börn. Börn Sigurðar Inga eru Nanna Rún, Jóhann Halldór og Bergþór Ingi. Börn Elsu eru Sölvi Már og Hildur Guðbjörg.

Powered by WordPress | Designed by: heartburn remedies | Thanks to penny stocks, web design firm and seo jobs