PÁLL STEFÁNSSON
er fæddur 15. des 1961 í Vík í Mýrdal. V-Skaftafellssýslu
Sonur hjónanna Stefáns Ármanns Þórðarsonar símvirkja, símsmið og bókara á Selfossi og Sigrúnar Jónsdóttur húsmóður á Selfossi.
Námsferill:
Tók stúdentspróf frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1981. Lauk háskólaprófi í dýralækningum frá Tierarztlihe Hochschule í Hannover, Þýskalandi í nóv. 1986. Almennt dýralæknaleyfi á Íslandi í jan. 1987 Námsdvöl við Tierarztlihe Hochschule í Hannover, frá ágúst 1989 til sept. 1990 hjá prófessor Bodo Hertsch í Chirurgie og Orthopadie. Á sama tíma námskeið í röntgentækni og fóðurfræði við sama skóla.
Starfsferill:
Starfsnám með skóla hjá Jóni Guðbrandssyni, héraðsdýralækni á Selfossi, 1984 og 1986. Samstarf með Jóni Guðbrandssyni við almennar dýralækningar og kjötskoðun frá 1. jan. 1987 til júní 1989. Starfsnám við Tierarztlihe Hochschule í Hannover frá ágúst 1989 til sept. 1990. Stundaði almennar dýralækningar í Bremen, Þýskalandi frá sept. 1990 til des. 1990. Dýralæknir í Helluhéraði frá des. 1990 til sept. 1991. Almennar dýralækningar og embættisstörf í afleysingum með Jóni Guðbrandssyni frá sept. 1991 til des. 1998. Stofnaði Dýralæknaþjónustu Suðurlands ehf. með Lars Hansen og Sigurði Inga Jóhannssyni 1. jan. 1996 og sinnti þá almennum dýralækningum á Suðurlandi. Dýraspítalinn á Stuðlum, sem seinna varð miðstöð Dýralæknaþjónustu Suðurlands, var stofnaður 1992 og stækkaður og endurbættur 2000, með þjónustu fyrir smádýr og hross. Framkvæmdarstjóri Dýralæknaþjónustu Suðurlands ehf. Stofnandi Sæðingastöðvarinnar í Gunnarsholti ehf. ásamt ýmsum öðrum og framkvæmdarstjóri þess reksturs frá 1999.
Félags og trúnaðarstörf:
Ýmis nefndar og trúnaðarstörf í félögum, m.a. formaður hestamannafélagsins Sleipnis á Selfossi og nágrenni 1995 – 1997. Skipaður í dýralæknaráð 1999. Fulltrúi í bæjarstjórn Ölfuss frá 2002 og hefur átt sæti í ýmsum nefndum og sinnt trúnaðarstörfum á vegum sveitarfélagsins.
Barnsmóðir:
Margrét Sigurðardóttir frá Stóru Sandvík. Barn þeirra er Hólmfríður Ásta.
Maki:
Edda Björk Ólafsdóttir 15. apríl 1963 starfsmaður Dýralæknaþjónustunnar og húsmóðir. Börn þeirra eru: Ólafur Tryggvi, Hrafnkell Áki, Fannar og Þórir Gauti




