LARS HANSEN
er fæddur 23. apríl 1958 á Öxnalæk, Ölfushr. Árn
Sonur hjónanna Jacob Hansen bónda á Öxnalæk og Margrétar Guðrúnar Hansen.
Námsferill:
Lars tók stútentspróf frá Menntaskólanum á Laugarvatni 1978. Lauk háskólaprófi í dýralækningum frá Den Kongelige Landbohöjskole og veterinær í Kaupmannahöfn í jan. 1985. Almennt dýralæknaleyfi í Danmörku í feb. 1985 og á Íslandi í des. 1985. Lauk M.Sc. – prófi í fiskisjúkdómafræðum frá Stirlingháskóla í Skotlandi 1986 – 1987.
Starfsferill:
Hann starfaði á námsárunum 1982 – 1983, frá júní til ágúst hvort ár, á Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins. Starfsmaður í sláturhúsi í Vojens og Struer, Danmörku frá júní til ágúst 1984. Settur útibússtjóri Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins í Neskaupsstað frá 1. júní til 31. des. 1985. Aðstoðarmaður dýralæknis fisksjúkdóma frá 15. okt. 1987 til 31. ágúst 1988. Settur dýralæknir fiskisjúkdóma frá 1. sept. 1988 til 30. 1989. Starfaði við lyfjafyrirtækið Smith Kline Beecham frá 1. mars 1990 til 31. mars 1995. Stundaði almennar dýralækningar á Suðurlandi frá 1. jan. 1996. Afleysingar fyrir héraðsdýralækna í Búðardal, á Selfossi, Hellu, Hvolsvelli, Skógum og á Höfn ýmis styttri tímabil. Var í árs starfsleyfi frá júli 2005 og dvaldi Þá í Danmörku þar sem hann vann við eftirlitsstörf í sláturhúsi.
Maki:
Gerður Þórisdóttir kennari við Grunnsólann á Hvolsvelli. Þau eiga 3 börn, Sara, Aron og Jakob Þórir
Félags og trúnaðarstörf: Lars hefur setið í stjórn Dýralæknaþjónustu Suðurlands frá jan. 1996.



