VESTMANNAEYJAR

Dýralæknaþjónusta Suðurlands i Vestmannaeyjum

Við komum til Eyja einn dag á tveggja vikna fresti og erum með móttöku fyrir smádýr í “gamla líkhúsinu” við hliðina á  ráðhúsbyggingunni. Við sinnum líka hrossa- og sauðfjáreigendum eftir þörfum. Vestmannaeyjar tilheyra vaktsvæði okkar. Neyðarvakt er í síma 482 30 60 allan sólahringinn.

Í kringum jól og áramót verða aðeins færri ferðir til Eyja, þannig að móttakan er á þriggja vikna fresti. Munið að alltaf er hægt að hringja í okkur og panta tíma og spyrja ráða.

Þjónusta  i Vestmannaeyjum:

SMÁDÝR:
Á stofunni í Eyjum getum við tekið á móti smádýrum í skoðun og bólusett, ormahreinsað, örmerkt og meðhöndlað eftir þörfum. Við getum tekið ýmis sýni, eins og til dæmis blóðsýni eða þvagsýni og við getum gert hvolpa- eða kettlingaskoðun og útbúið vottorð fyrir tryggingu dýrs. Á staðnum getum við framkvæmt einfaldar aðgerðir eins og geldingu á fress eða rakka, ófrjósemisaðgerð á læðu, tannhreinsun og fleira. Ófrjósemisaðgerð á tík er stærri aðgerð og þarf að koma á stofuna okkar á Selfossi til þess að láta gera hana, og það sama gildir um röntgenmyndatökur, ómskoðun og fleira.

HROSS OG SAUÐFÉ:
Skoðun og meðhöndlun eftir þörfum, tannhirða, ýmis sýnataka og fleira er hægt að framkvæma þegar við komum í vitjun. Minni aðgerðir eins og að gelda eða skera við stag, sauma sár og fleira getum við líka gert á staðnum.

Powered by WordPress | Designed by: heartburn remedies | Thanks to penny stocks, web design firm and seo jobs