Þjónusta
Við önnumst alla almenna dýralæknaþjónustu fyrir bændur og aðra dýraeigendur á Suðurlandi.
Á Stuðlum er rekinn spítali fyrir bæði smádýr og hross og einnig verslun með fóður og vörur fyrir gæludýr og bætiefni fyrir hross.
VITJANIR:
Þjónustusvæði okkar er frá Hellisheiði í vestri og austur í Vestur-Skaftafellssýslu. Aðsetur dýralækna okkar eru á Stuðlum í Ölfusi (Selfoss) og á Hvolsvelli. Frá Stuðlum sinnum við aðallega Árnessýslunni, en Lars Hansen starfar í Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu.
HESTASPÍTALI:
Heilbrigðisskoðun, röntgenmyndatökur (stafræn framköllun), blóðrannsóknir á staðnum, speglun, tannlækningar, innlögn, vitjanir, sónarskoðun, sæðingar. Einstaklega góð aðstaða er fyrir stærri aðgerir. Ýmis bætiefni fyrir hross til sölu, eigin innflutningur.
SMÁDÝR:
Bólusetningar, ormahreinsanir, eyrnaskolun, sónar, röntgenmyndatökur, tannhreinsun, tannlækningar, speglun, blóðrannsóknir, fæðingarhjálp, sjúkrainnlögn. Mjög góð aðstaða fyrir allar helstu aðgerðir. Allar komur verða skráðar í tölvukerfi sem heldur utan um sjúkraskrár dýranna.
GÆLUDÝRAVERSLUN:
Full búð af vörum fyrir hunda og ketti. Hágæða fóður fyrir hunda og ketti frá Hills, Royal Canin og Belcando, einnig allar tegundir sjúkrafóðurs sem dýralæknir ávísar. Ýmsar gæludýravörur frá öllum helstu innflytjendum á Íslandi. Margskonar fæðubótaefni eru á boðstólum fyrir smádýr.
Opnunartími verslunarinnar er frá kl. 8:00 til 18:00 alla virka daga.
VESTMANNAEYJAR:
Dýralæknir frá okkur kemur til Eyja einn dag á tveggja vikna fresti og erum þá með móttöku fyrir smádýr í “gamla líkhúsinu” við hliðina á ráðhúsbyggingunni. Við sinnum líka hrossa- og sauðfjáreigendum eftir þörfum. Vestmannaeyjar tilheyra vaktsvæði okkar. Tímapöntun og neyðarvakt er í síma 482 30 60 allan sólahringinn.



