Halldóra Hrund ráðin til Dýralæknaþjónustu Suðurlands

Halldóra Hrund Guðmundsdóttir dýralæknir hefur hafið störf hjá okkur. Hún er með próf frá dýralæknaháskólanum í Kaupmannahöfn og starfaði í haust sem eftirlitsdýralæknir við sauðfjárslátrun á Kópaskeri. Hún mun bæði taka stórdýravitjanir (í Árnessýslu) og vera á móttökunni á Stuðlum í  hrossum og smádýrum.

Bólusetning gegn garnaveiki

Viljum minna eigendur sauðfjár á þeim svæðum sem skylt er að láta bólusetja gegn garnaveiki að fara að huga að því. Best er að hafa samband sem fyrst þannig að allt ásetningsfé verði bólusett fyrir áramót eins og segir í reglugerð. Upplýsingar um garnaveiki er að finna á vef Mavælastofnunar (http://mast.is/upplysingar/baendur/dyrasjukdomar).

Eyjamenn ath.!

Því miður hélst ekki flugáætlun í dag heldur og einhverjar breytingar verða á dagsskránni. Það verður hringt í alla í dag.

Starfsmanna breytingar

Það hafa orðið nokkrar breytingar á starfsfólki Dýralæknaþjónustunnar. Guðmar Aubertsson dýralæknir er hættur störfum hjá okkur. Árni M. Mathiesen dýralæknir hefur hafið störf hjá okkur og er við á smádýramóttökunni á þriðjudögum og fimmtudögum.

Ásdís í fæðingarorlof

Ásdís dýralæknir smádýra er núna komin í fæðingarorlof. Svafa dýralæknir sér um smádýramóttökuna eins og áður. Á meðan hún er ein í því mun móttakan vera opin til um kl. 14 á daginn, en að sjálfsögðu komast þau tilfelli sem ekki geta beðið líka að á öðrum tímum.

Sigurður Ingi á Alþingi

Eins og flestir sem hafa fylgst með kosningunum vita, þá leiddi Sigurður Ingi Jóhannsson, dýralæknir og meðeigandi Dýralæknaþjónustunnar, lista Framsóknarmanna í Suðurkjördæmi. Hann býr sig nú undir að taka sæti á Alþingi og er hættur dýralæknastörfum. Það er mikill missir af kröftum Inga  í dýralækningum, en við óskum honum góðs gengis á nýjum vettvangi.

Eyjamenn athugið!

Við höfum hingað til auglýst hverja komu dýralæknis til Eyja í Vaktinni. Nú kemur það ágæta blað út bara einu sinni í mánuði, og þar sem við komum svo reglulega til Eyja, þá er ekki þörf á að auglýsa sérstaklega hvert skipti. Bendum við í stað þess á að það er alltaf hægt að hringja í okkur í 482 3060 til að fá upplýsingar og hér á heimasíðu okkar eru dagsetningarnir auglýstir á hverjum tíma, þannig að þetta ætti að vera öllum vel aðgengilegt.

Góðar viðtökur í Eyjum

Það er búið að vera mikil eftirspurn eftir dýralæknaþjónustu í Eyjum á síðustu misserum, og þökkum við góðar viðtökur. Í Janúar munum við þess vegna koma til Eyja á tveggja vikna fresti í stað þriggja áður, og ef það gengur upp, verður það til frambúðar. Vonandi verður það til þess að létta á vinnuálagið og auðvelda Eyjamönnum að komast að með dýrin sín.

Eyjamenn ath.!

Dýralæknir komst ekki til Eyja í dag vegna ófærðar, en reynt verður aftur á morgun. Hringt verður í alla á listanum í dag og boðinn verður sami tími á morgun, miðvíkudag.

Sauðfjárbændur athugið!

Viljum minna á að nú er kominn tími til að huga að garnaveikisbólusetningunni. Samkvæmt reglugerðinni skal eigandi eða umráðamaður sauðfjár og/eða geita láta dýralækni bólusetja öll ásetningslömb/kið til varnar garnaveiki á tímabilinu frá 15. september til 31. desember ár hvert, á þeim svæðum sem skylt er að bólusetja á. Endilega hafið samband við ykkar dýralækni sem fyrst – tilgangurinn er að uppræta garnaveiki á Suðurlandi!

Powered by WordPress | Designed by: heartburn remedies | Thanks to penny stocks, web design firm and seo jobs