Um heilsufar katta

Að fá sér kött
Ákvörðun um að fá sér kött á ekki að gera léttilega enda um langtíma skuldbindingu að ræða. Að halda gæludýr er mikil ábyrgð og eigendum ber að kynna sér hvaða skyldur þeirra eru gagnvart dýri í þeirra vörslu. Að hafa kött er einnig mikil gleði og sjálfsagt fyrir eiganda að kanna hvað hann getur gert fyrir köttin sinn og hvaða þjónustu hann getur boðið honum. Heilbrigðisþjónustu fyrir ketti fylgir að sjálfsögðu nokkur kostnaður, fyrir að ekki tala um ef slys eða sjúkdómar bera að garði. Nú eru í boði mjög góðar gæludýratryggingar hjá flestum tryggingarfélögum og allir ættu að hafa í huga að ekki er hægt að tryggja eftirá! Einnig er mikilvægt að kattaeigendur kynni sér reglur um kattahald í sínu sveitarfélagi og láti skrá og merkja ketti sína samkvæmt þeim.

Örmerking
Örmerking er ein leið til að einstaklingsmerkja kött. Þetta er varanleg merking þar sem lítilli örflögu á stærð við hrisgrjón er stungið undir húðina. Þannig er engin hætta á að merki glatist eins og vill gjarnan verða þegar merki hangir í hálsól. Númerið á merkinu er svo hægt að lesa af með sérstöku aflestrartæki og hægt verður að hafa upp á eiganda ef dýr týnist eða er fangað af dýraeftirlitsmanni. Sum sveitarfélögin fara fram á að allir kettir séu örmerktir og eins sum tryggingafélög. Örmerking er hægt að framkvæma strax við fyrstu bólusetningu, en einnig hvenær sem er seinna.

Ormahreinsun
Samkvæmt lögum er öllum kattaeigendum skylt að láta ormahreinsa kött sinn árlega. Með tilkomu nýrra lyfja og rannsókna hafa ormavandamál smádýra orðið einföld viðureignar. Nauðsýnlegt er að ormahreinsa bæði fyrir bandormum og spóluormum.

Litlir kettlingar smitast með innvolsormum strax eftir fæðingu með móðumjókinni og frá húð læðunnar. Fullorðnir kettir smitast aðallega við það að veiða mýs eða fugla, og getur smitálagið orðið mikið þar sem margir kettir eru á sama svæðinu. Það má reikna með að allir  kettir séu með einhverja orma þó að þeir sjáist ekki nema smitið verði töluvert. Almennt er mælt með að ormahreinsa unga ketti 3-4 sinnum á ári og er hægt að nálgast ormalyf hjá öllum starfandi dýralæknum og í apótekum. Hafa ber í huga að við hreinsun drepast þeir ormar sem í dýrinu eru en örfáum dögum síðar fara nýir að taka sér bólfestu og þeir fjölga sér smám saman  fram að næstu hreinsun. Ormasmit er því viðvarandi en smitálagi er haldið niðri með reglubundnum hreinsunum. Ormahreinsun hefur mjög jákvæð áhrif á almennt heilbrigði dýranna.  Mótstaða gegn sjúkdómum verður meiri, dýrin fóðrast betur af því sem þau éta auk þess sem hárafar verður fallegra og meira glansandi.  Þegar dýrin eldast má fækka ormalyfsgjöfunum niður í 1-2 skipti á ári, eftir því hversu mikill samgangur er hjá þeim við önnur dýr vegna smitálags og hversu mikið þeir veiða.

Ormasmitaðir kettir hafa iðulega mattan og glanslausan feld, fóðrast illa, hósta af og til og fá jafnvel niðurgangsköst öðru hvoru.  Oft á tíðum má sjá orma í saur eða ælu dýranna. Spóluormar eru þráðlaga á bilinu 5-15 sm langir en egg frá bandormum líta út eins og hrísgrjón.

Við mælum með eftirfarandi fyrirkomulagi:

* Ormahreinsa læður eftir got og kettlinga þeirra við 4-6 vikna aldur, vel fyrir fyrstu bólusetningu.
* Ormahreinsa kettlingana aftur við fyrstu bólusetningu 8 vikna gamla og aftur 6 og 9 mánaða gamla
* Ormahreinsa síðan reglulega einu sinni til tvisvar á ári með breiðvirku ormalyfi sem drepur bæði spóluorma og bandorma.

Bólusetningar
Tilgangur bólusetninga er að vernda köttinn og aðra ketti sem hann hefur samskipti við fyrir ákveðnum smitsjúkdómum, í flestum tilfellum veirusýkingum.

Þegar bólusett er í fyrsta skipti er talað um grunnbólusetningu gegn ákveðnum sjúkdómi og er þá nánast í öllum tilfellum um tvær bólusetningar að ræða sem framkvæmdar eru með 4-6 vikna millibili.  Tvær bólusetningar með stuttu millibili er oft nauðsýnlegt fyrir líkamann að mynda nægilegt magn mótefna í nógu langan tíma til að varna gegn smitsjúkdómum. Eftir grunnbólusetningu er nægilegt að endurbólusetja sjaldnar til þess að halda mótefnamagninu uppi.

Ef móðir kettlings hefur verið grunnbólusett og verið endurbólusett reglulega samkvæmt tilskildum tímamörkum þá fá afkvæmi hennar mótefni með móðurmjólkinni sem vernda þau fyrstu 8 til 12 vikurnar.  Eftir það þarf að grunnbólusetja kettlingana og vekja þannig ónæmiskerfi þeirra sem einstaklinga til að mynda mótefni gegn sjúkdómunum.Til þess að bólusetningin hafi tilskilin áhrif þarf dýrið að vera við góða heilsu og skulu ávallt vera ormahreinsaðir fyrir fyrstu bólusetningu. Á Íslandi eru kettir bólusettir gegn kattafári og kattakvefi og kattaflensu og notast er við blandað bóluefni gegn öllum þessum sjúkdómum saman.

Kattafár
Kattafár er veirusýking sem veldur aðallega einkenni frá meltingarvegi með niðurgang og uppköst með hita eða í slæmum tilfellum verki í kvíð, lækkaðan líkamshita og dauða innan 24 tíma vegna blóðeitrunar. Sýking á meðgöngu getur valdið fósturláti, fæðingarerfiðleikum og vansköpun í kettlingunum. Ungir kettlingar eru viðkvæmastir fyrir sýkingunni og lífa oftast ekki af, en eldri dýr geta sýnt vægari einkenni og sigrast oft hratt á sýkingunni. Bólusettir kettir eru vel varðir gegn sjúkdómnum, en veiran er harðgerð og smitar auðveldlega, þannig að hver óbólusettur köttur hefur sinn þátt í að halda smitinu gangandi í kattastofninum.

Kattakvef og kattaflensa
Smitsjúkdómar sem leggjast á augu og efri öndunarveg á köttum eru algengar. Það eru aðallega tvær veirur sem valda þeim. Feline herpesvirus (kattaflensa) og Feline calicivirus (kattakvef). Einkennin eru keimlik og eru meðal annars hiti, slappleiki, augnrennsli, hnerrar, hósti og lystarleysi. Seinna á ferlinum geta augnsýkingar gert vart við sig. Flestir kettlingar ná sér af sjálfsdáðum, en sjúkdómurinn getur orðið langvarnandi og leiðir stundum veikburða einstaklingum til dauða. Því míður eru sjúkdómar í öndunarvegi þess eðlis að erfitt reynist að þróa bóluefni sem veitir algera vörn gegn þeim (samanber influensa í fólki), en bólusetning dregur verulega úr einkennum og það getur gert gæfumuninn fyrir marga ketti.

Algengir kvillar
- í vinnslu

Breim og frjósemi læða
- í vinnslu

Ófrjósemisaðgerð
- í vinnslu

Pillan
- í vinnslu

Got og kettlingar
- í vinnslu

Frjósemi og hegðun hjá fressum
- í vinnslu

Gelding
- í vinnslu

Powered by WordPress | Designed by: heartburn remedies | Thanks to penny stocks, web design firm and seo jobs