Um ormalyfjagjöf
Ráðlegging að kerfisbundinni ormalyfsgjöf
Folöld og folaldshryssur:
1. Snemma vors, eða þegar 1-2 mánuðir eru í köstun er fylfullum hryssum gefið Eqvalan eða Bimectin (Eqvalan Duo ef ekki var notað bandormalyf um haustið).
2. Þegar folaldið er 4-6 vikna (t.d. þegar hryssan fer til eða kemur frá hesti): Eqvalan/Bimectin handa báðum. Í sparnaðarskyni er ásættanlegt að gefa hryssunni Zerofen í staðin en ekki borgar sig að spara þegar folaldið á í hlut.
3. Þegar folaldið er 8-10 vikna eða seinni part sumars er bæði folaldinu og hryssunni gefið Banminth.
4. Um haustið þegar folaldið er 3-4 mánaða gamalt er gott að gefa því inn Zerofen gegn fullorðnum spóluormum. Hryssunni er gefið með sérstaklega ef hún hefur gengið í þröngu hólfi allt sumarið.
5. Í byrjun vetrar (þegar tekið er undan): Bæði hryssunni og folaldinu gefið Equest Pramox eða dýralæknir fenginn til að sprauta undir húð.
Tryppi og fullorðin hross:
1. Áður en sleppt er á sumarbeit eða hross færð í reiðhestahólf: Gjarnan Equest Pramox (virkar yfir sumarmánuðina), annars Eqvalan/Bimectin eða Banminth (eða Eqvalan Duo ef ekki var gefið bandormalyf um haustið). Það er gott að skipta milli lyfjaflokka milli ára til þess að sporna gegn myndun lyfjaónæmis. Mælt er með að gefa inn ormalyf þremur dögum áður en hrossunum er sleppt til þess að verja beitiland gegn mengun af lyfjaleifum.
2. Um mitt sumar (júlí-ágúst): Zerofen. Sérstaklega mikilvægt fyrir veturgömul tryppi eða hross sem eru í þröngu reiðhestahólfi allt sumarið.
3. Haust eða snemma vetrar: Equest Pramox, eða láta dýralækni sprauta með Dectomax undir húð.
Algert lágmark er að ormahreinsa öll hross tvisvar á ári, t.d. áður en sleppt er á vorin og aftur þegar er skipt yfir í haustbeit eða hross tekin á hús.



