Dýr í óskilum

Ef hundur eða köttur týnist er best hafa samband við viðkomandi sveitarfélag sem fyrst.
Dýraeftirlitsmaður Árborgar: Ragnar Sigurjónsson S. 863-0017
Dýraeftirlitsmaður Hveragerðisbæjar: Kristján Jónsson S. 822-2299
______________________________________________________
Einstaklingsmerkingar dýra og reglur um dýrahald
Í flestum sveitarafélögum þarf sérstakt leyfi til þess að vera með hund eða kött. Það er mjög mikilvægt fyrir dýraeigendur að kynna sér hvaða reglur gilda í sveitarfélaginu sínu. Meðal annars þurfa öll dýr að vera skráð og merkt á viðeigandi hátt til þess að það sé hægt að sameina þau eiganda ef þau lenda í óskilum og eru handsömuð af dýraeftirlitsmanni eða lögreglu eða ef finnandi kemur með slasað dýr til dýralæknis.
Það eru aðallega þrenns konar einstaklingsmerkingar til. Handhægt er að vera með merki með upplýsingum sem hanga í ól dýrsins. Þetta getur hver sem er lesið, en ól og merki eiga það til að týnast. Varanlegar merkingar eru annars vegar tattóvering í eyra, sem er mest notað á köttum. Dýralæknar sem tattóvera eru með eigin skrá yfir merkt dýr og ef tattóveringin er góð er auðvelt að lesa merkið, en það kemur fyrir að það verði illlæsilegt. Önnur varanleg merking, sem er kannski mest notuð í dag er örmerking. Lítilli rafflögu er þá komið fyrir undir húð á dýrinu, og ekki þarf að svæfa til þess. Gallinn er að merkið sést ekki utaná dýrinu, heldur þarf sérstakt aflestrartæki til þess að lesa af talnarununa. Dýralæknar og dýraeftirlitsmenn eru með slik tæki. Þessi merki eru hins vegar mjög örugg, þar sem þau tapist ekki, og mjög sjaldgæft er að merki hætti að virka. Við hjá Dýralæknaþjónustu Suðurlands notum eingöngu örmerki. Tryggingafélög, ræktunarfélög og sum sveitarfélög heimta að dýr séu örmerkt. Einnig er örmerki skylda við flutning milli landa.
Fyrir hross gildir samkvæmt reglugerð að öll hross eldri en 10 mánaða skuli einstaklingsmerkt með örmerki og skráð í World Feng.



