Archive for the ‘Fréttir’ Category

Eyjamenn ath.!

Því miður hélst ekki flugáætlun í dag heldur og einhverjar breytingar verða á dagsskránni. Það verður hringt í alla í dag.

Starfsmanna breytingar

Það hafa orðið nokkrar breytingar á starfsfólki Dýralæknaþjónustunnar. Guðmar Aubertsson dýralæknir er hættur störfum hjá okkur. Árni M. Mathiesen dýralæknir hefur hafið störf hjá okkur og er við á smádýramóttökunni á þriðjudögum og fimmtudögum.

Ásdís í fæðingarorlof

Ásdís dýralæknir smádýra er núna komin í fæðingarorlof. Svafa dýralæknir sér um smádýramóttökuna eins og áður. Á meðan hún er ein í því mun móttakan vera opin til um kl. 14 á daginn, en að sjálfsögðu komast þau tilfelli sem ekki geta beðið líka að á öðrum tímum.

Sigurður Ingi á Alþingi

Eins og flestir sem hafa fylgst með kosningunum vita, þá leiddi Sigurður Ingi Jóhannsson, dýralæknir og meðeigandi Dýralæknaþjónustunnar, lista Framsóknarmanna í Suðurkjördæmi. Hann býr sig nú undir að taka sæti á Alþingi og er hættur dýralæknastörfum. Það er mikill missir af kröftum Inga  í dýralækningum, en við óskum honum góðs gengis á nýjum vettvangi.

Eyjamenn athugið!

Við höfum hingað til auglýst hverja komu dýralæknis til Eyja í Vaktinni. Nú kemur það ágæta blað út bara einu sinni í mánuði, og þar sem við komum svo reglulega til Eyja, þá er ekki þörf á að auglýsa sérstaklega hvert skipti. Bendum við í stað þess á að það er alltaf hægt að hringja [...]

Góðar viðtökur í Eyjum

Það er búið að vera mikil eftirspurn eftir dýralæknaþjónustu í Eyjum á síðustu misserum, og þökkum við góðar viðtökur. Í Janúar munum við þess vegna koma til Eyja á tveggja vikna fresti í stað þriggja áður, og ef það gengur upp, verður það til frambúðar. Vonandi verður það til þess að létta á vinnuálagið og [...]

Eyjamenn ath.!

Dýralæknir komst ekki til Eyja í dag vegna ófærðar, en reynt verður aftur á morgun. Hringt verður í alla á listanum í dag og boðinn verður sami tími á morgun, miðvíkudag.

Sauðfjárbændur athugið!

Viljum minna á að nú er kominn tími til að huga að garnaveikisbólusetningunni. Samkvæmt reglugerðinni skal eigandi eða umráðamaður sauðfjár og/eða geita láta dýralækni bólusetja öll ásetningslömb/kið til varnar garnaveiki á tímabilinu frá 15. september til 31. desember ár hvert, á þeim svæðum sem skylt er að bólusetja á. Endilega hafið samband við ykkar dýralækni [...]

Nýtt í gæludýrabúðinni

Höfum tekið í sölu nýtt hunda- og kattafóður frá þýska framleiðandanum BOGRO Tierernahrung. Um er að ræða gæðafóður framleitt úr hreinu kjöti og öðrum nátturulegum afurðum án allra aukaefna. Ekki skemmir heldur verðið fyrir. Belando-hundafóðrið fæst bæði sem þurrfóður og dósamat. Leonardo-dósamaturinn fyrir ketti er 100% ferskt kjöt.

Eyjamenn ath.!

Ferð dýralæknis til Eyja sem fara átti í dag verður frestað vegna veðurs og verður farin á  morgunn, miðvikudag, þann 17.9. Flestir tímar haldast óbreyttir, en verða sem sagt degi seinna. Hringt verður í alla á listanum í dag.

Powered by WordPress | Designed by: heartburn remedies | Thanks to penny stocks, web design firm and seo jobs