Archive for the ‘Fréttir’ Category

Fóður fyrir nagdýr

Nú er hægt að fá hjá okkur fóður fyrir kanínur, naggrísi og hamstra. Framleiðandinn er breskur. Fyrir fugla er hægt að fá að panta einstaklega gott fóður frá Ameríska framleiðandanum Harrison’s.

Dýralæknir í Eyjum næst 12.10

Ásdís Linda Sverrisdóttir dýralæknir kemur til Vestmannaeyja næst miðvikudaginn 12. október. Tímapantanir í síma 482 30 60.

Dýralæknir í Eyjum 22.9

Svafa Sigurðardóttir dýralæknir kemur til Vestmannaeyja fimmtudaginn 22. september. Tímapöntun í síma 4823060. Það verður hringt daginn áður í alla sem panta tíma.

Dýralæknir í Eyjum næst 30.8.11

Ásdís Linda Sverrisdóttir dýralæknir kemur til Vestmannaeyja þriðjudaginn 30. ágúst. Tímapantanir í síma 482 3060. Það verður hringt í alla sem þegar eru búnir að panta daginn fyrir.

Dýralæknir í Eyjum næst 13.7.2011

Næsta koma dýralæknis til Vestmanneyja er miðvikudaginn 13. júli. Enn er hægt að panta tíma í síma 4823060. Næsta dagsetning þar á eftir er 4.8.2011.

Nýja heimasíðan okkar er í vinnslu

Kæru viðskiptavinir, velkomin á nýju heimasíðu okkar! Eins og þið takið eflaust eftir, þá leynist á henni þónokkuð af villum og úreltum upplýsingum og biðjumst velvirðingar á því og reynum að uppfæra hana sem fyrst. Hafið endilega samband, t.d. með tölvupósti á dyrasud@simnet.is ef þið viljið koma einhverjum ábendingum á framfæri um innihald síðunnar.

Gleðilegt ár

Við óskum öllum viðskiptavinum okkar gleðilegs árs 2011! Undanfarið hefur verið unnið að endurbótum í afgreiðslu og smádýramóttöku hjá okkur og biðjumst velvirðingar á óþægindum sem það kann að hafa valdið. Vinnunni er ekki alveg lokið enn, en það er okkur sönn ánægja að bjóða ykkur velkomin á nýju ári í bættri aðstöðu! Það hafa [...]

Ásdís komin til starfa á ný

Ásdís dýralæknir er nú komin aftur úr fæðingarorlofi og er á stofunni alla virka daga til kl. 13:30. Í staðin er Mia dýralæknir nú komin í fæðingarorlof og verður fram á haust.

Halldóra Hrund ráðin til Dýralæknaþjónustu Suðurlands

Halldóra Hrund Guðmundsdóttir dýralæknir hefur hafið störf hjá okkur. Hún er með próf frá dýralæknaháskólanum í Kaupmannahöfn og starfaði í haust sem eftirlitsdýralæknir við sauðfjárslátrun á Kópaskeri. Hún mun bæði taka stórdýravitjanir (í Árnessýslu) og vera á móttökunni á Stuðlum í  hrossum og smádýrum.

Bólusetning gegn garnaveiki

Viljum minna eigendur sauðfjár á þeim svæðum sem skylt er að láta bólusetja gegn garnaveiki að fara að huga að því. Best er að hafa samband sem fyrst þannig að allt ásetningsfé verði bólusett fyrir áramót eins og segir í reglugerð. Upplýsingar um garnaveiki er að finna á vef Mavælastofnunar (http://mast.is/upplysingar/baendur/dyrasjukdomar).

Powered by WordPress | Designed by: heartburn remedies | Thanks to penny stocks, web design firm and seo jobs